Löndun í fyrramálið.

Við erum á síðasta holinu þennan túrinn. Förum síðan til Vestmannaeyja og löndum. Makríllinn er vel haldinn, alltaf að stækka og fitna. Semsagt allt í þessu fína.

Eldur í trollum og fleira 013 

Höfnin, byggðin og  fleiri eyjar í baksýn. 

hjólatúr 006 

Jæja, er þetta ekki bara nokkuð góð mynd.

 


Makríll DNA

Við erum komnir með sjötíu tonn af góðum makríl. Þeir sem vilja vita hvar við erum er bent á viðeigandi vefsíðu. "marinetraffic.com". Svo segja fréttamiðlar að vísindamenn séu að rannsaka erfðamengi makrílsins okkar. Vilja jafnvel meina að hann sé ekki evrópskur. Og því eigi esb og nojarar ekkert í honum. Sem segir sig sjálft. Vér Mörlandar og frænur vorir Færeyingar, við eigum þann fisk sem vill koma í okkar sjó og fá sér eitthvað í gogginn. Og verða stór, feitur og sterkur af úrvals æti.

hjólatúr 003 

Nýmálaður. 

hjólatúr 011 

Þetta er Blátindur. Vonandi verður þessi gamli vertíðar og síldarbátur gerður upp. 

Eldur í trollum og fleira 015 

Fjárhirðirinn gáir til veðurs uppá bæjarhólnum.


Miðnæturblogg

Við komum til Vestmannaeyja klukkan fjórtán hundruð. Erum búnir að landa hundrað og fimmtíu tonnum. Fórum svo út aftur klukkan tuttugu og þrjú fimmtán. 

Bæjahóllinn og fleira 026 

Þarna siglir einhver inn. 

 

Meira blogg á morgun. Vonandi. 


Byrjaðir á makríl.

Jæja, það var víst 4. maí sem síðast var bloggað.  En við erum búnir að vera í slipp í borg óttans og einnig hefur mikil viðhaldsvinna farið fram í Vestmannaeyjum. Við fórum frá Vestmannaeyjum klukkan níu í morgun og nú skal veiða makríl. Búnir að taka eitt hol og gekk það vel. Erum núna að fara að kasta aftur. Vonandi verður hægt að segja aflafréttir á morgun.

20. júlí 2012 002 

Þetta grjót er listaverk og heitir "Eyra á Eiði."

Friður í Friðarhöfn 001 

Friður í Friðarhöfn. 

Eyþór þrítugur 014 

Hann Eyþór á afmæli í dag. Þrjátíu og eins. Til hamingju með það. 


4. mai

Þá fer að styttast í þessum túr. Nokkur ker eftir tóm. Veður eins og best gerist. Enda komið sumar.

009 

 Landsýn. Sjáið jökulinn loga. Segir í gömlu og góðu dægurlagi. Langt síðan þessi jökull logaði. Vonandi langt í að hann logi aftur.

001 

Stórfiskahol. 

008 

Pakksaddir matargestir. 


3. mai.

Það er kominn tími á smábloggg. Ekkert verið bloggað síðan fimmtánda mars. Apríl blogglaus mánuður. Við fórum út að kvöldi fyrsta maí. Og fórum í austur og erum að trolla sunnan Vatnajökuls. Í blíðskaparveðri og fiskirí í góðu meðallagi. Aflinn er samansettur af eintómum vænum gulum og bláum fiskum. Ekkert sem heitir undirmál lengur í landhelgi Íslands. Svo kvu einhverjir vitringar hafa friðað lúðuna. Og svartfugla. Hvað ætli verði friðað næst. 

bloggleti 008 

Fyrir þá sem ekki vita hvaða fiskur þetta er, þá var þetta þorskur er hann lifði og synti í hafinu. En karlinn hann Óðinn segði að þorskur af þessari stærð væri talinn undirmálsfiskur í Lónafirði. Þar væri allt svo stórt. 

bloggleti 009 

Þá er þoskurinn á fyrri myndinni kominn á sinn stað í einangrað fiskiker og Stjáni að fara að kafísa hann. 

 


Löndun ofl.

Við fylltum alla geyma af loðnu og fórum til Vestmannaeyja til að landa. Komum í land kl.0300 á þriðjudag. Biðum eftir að klárað væri landað úr Júpíter og Álsey. Færðum svo á löndunarbryggju og byrjuðum að landa kl. 0230 á miðvikudag. Löndun kláraðist kl 0130 í nótt og færðum við þá frá löndunarbryggju svo að Sigurður kæmist að í löndun. Semsagt mikið landað í Eyjum nú í lok vertíðar. Við eigum að fara einn túr enn og síðan verður skipt yfir á botntroll. 

Grjót 006 

Heimaklettur í morgunsól. 

Grjót 008 

Meiri morgunsól á kletta. 

Grjót 001 

Dekkþvottur. 

Grjót 003 

Ný sjónvarpskúla á uppleið. 


Fullfermi

Brælan gekk niður seinnipartinn í gær og við fórum út á flóann klukkan tuttugu. Fengum það sem á vantaði uppá fullfermi í þrem köstum. Og siglum nú sem ákafast í áttina að Vestmannaeyjum og verður þar  um þrjúleitið í nótt. 

eftir brælu 007 

Hér eru karlar á Bjarna Ólafs af Skaganum að leita að loðnu. Sem þeir fundu svo og köstuðu rétt hjá okkur.

eftir brælu 018 

Laugi á rannsóknarstofu skipsins við vísindastörf.

eftir brælu 012 

Stebbi G er áhugamaður um fjarstýringar, eins og sést.

eftir brælu 028 

Karlar í loðnutalningu. 


Bræla

Við fórum frá Vestmannaeyjum klukkan þrettánhundruð í gær. Það var skítabræla er við fórum út. Köstuðum svo þrisvar í morgun í Faxaflóanum. En Kári fór að blása betur og við komum okkur í var utan við Keflavík. Erum þar í vari ásamt fleiri skipum. Samkvæmt veðurspá á víst að vera vitlaust veður um allt land og miðin í nótt og kannski lengur.

Bræluveið 003 

Vindhraði 20 m/sek er verið var að dæla úr nótinni í morgun.

Bræluveið 012 

Fylgst með dælingu. 

Bræluveið 010 

Loðna, bjargvætturinn í dag. 


Sólgos.

Vegna sólgoss á á að vera mikið norðurljósasjóv í kvöld og nótt. Nú erum vér að landa í Vestmannaeyjum. Fullfermi af hrognafullri loðnu. Við fórum út í túrinn á mánudagskvöld. Fengum gefins afgang frá Júpíter og fylltum svo í þrem köstum. Það var skítabræla alla leiðina frá Breiðafirði til Eyja.

Sigurður hreppstjóri o.fl 001 

Hér er eitthvert skip í öldudal. 

Sigurður hreppstjóri o.fl 005 

Og það var þá sjálfur Sigurður hreppstjóri sem kom uppúr öldudalnum.

Sigurður hreppstjóri o.fl 009 

Svo sigldi hreppstjórinn að oss og kastaði.

Sigurður hreppstjóri o.fl 028 

Fyrst var síðutogarinn Sigurður með einkennisnúmer ÍS 33, síðan RE 4 ef ég man rétt. Og nú VE 15. Og búið að breyta honum í nótaskip fyrir löngu síðan. En eitt hefur aldrei breyst og það er skorsteinsmerkið. 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Starfsmannafélagið Gullmolinn

Höfundur

Starfsmannafélagið Gullmolinn
Starfsmannafélagið Gullmolinn
Blogg Gullmolans starfsmannafélags áhafnar Þorsteins ÞH 360 frá Þórshöfn. Netfang gullmolinn360@gmail.com
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...img_7064
  • ...img_7079-1
  • ...img_7063
  • ...img_7075
  • ...912_1213644

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Spurt er

Hverjir verða Englandsmeistarar
Á kokkurinn að hafa saltfisk laugardögum.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband